Hvar hefur Kári Kristján verið ?

Eins og glöggir handboltaunnendur hafa tekið eftir í fyrstu leikjum tímabilsins hefur Kári Kristján Kristjánsson ekkert verið að spila.
Kári hefur reyndar verið duglegur að mæta á Haukaleikina en ekki til að spila heldur til að horfa á liðsfélagana spila. Haukar.is ákvað því að fara grafa aðeins ofan í málið og náði tali á Kára.

Fyrsta spurningin sem við spurðum Kára var einfaldlega sú, hvað er að hrjá þig ?
 
– Ég er með brot á "fimmta metatarsal" sem er beinið sem til dæmis Wayne Rooney braut um árið (Rooney er fótboltamaður sem spilar fótbolta með Manchester United og enska landsliðinu). Það brotnaði eftir uppstökk og lendingu á Ragnarsmótinu á Selfossi, ekkert óeðlilegt sem ég gerði, þannig þetta kom mér svolítið á óvart, því að ég er jú gerður úr stáli og því kom það mér á óvart að ég hafi brotnað, en ótrúlegustu hlutir geta auðvitað alltaf gerst.

 
Kári nefndi það að hann væri með bort á “fimmta metatarsal”, hvar er það bein ?
 – Þetta er beinið sem liggur að liðamótunum þar sem táin byrjar.

 
En hvernig gengur batinn, hvað er langt í að sjá Kára spila handbolta ?

 – Ég er að vonast til að komast í myndatöku á mánudag eða þriðjudag sem á að segja mér hvernig gróaandinn sé búinn að vera. Þannig að eins og staðan er í dag vona ég að ég geti byrjað með mikilli ákefð eftir 2 vikur. Ég er svo að vonast til að ná Aftureldingar leiknum sem er 19.okt annars ætti ég að verða skotheldur 30.okt gegn HK.

 
En hvernig finnst Kára byrjunin á tímabilinu hafa verið hjá Haukum án hans ?
 – Mér hefur fundist þetta gengið eins og vel smurður togari. Glæsilegt hvað við höfum náð að spila fína vörn og erum að stilla strengina í sókninni. Einnig er gaman að sjá þessa breidd sem við höfum sem enginn bjóst við.

 
En það hlýtur að vera erfitt að þurfa horfa á leikina úr stúkunni og fá ekkert að spila ?
 –
Jú, það er alltaf jafn erfitt að horfa á.

 

Við þökkum Kára Kristjáni kærlega fyrir þetta og vonandi að þetta hafi náð að fræða handboltaunnendur sem ekki höfðu hugmynd hvað var að angra Kára til að iðka handknattleik

– Arnar Daði Arnarsson skrifar

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…