Hvað segja leikmenn Hauka ? – Eftir leikinn í gær

Eins og greint var hér á síðunni í gær, sigruðu Haukar fyrsta leik sinn í Meistaradeild Evrópu í gær gegn ZTR Zaporozhye. Haukar fóru með eins marks sigur af hólmi.

Við fengum nokkra leikmenn Hauka til að lýsa því, hvernig stemming var eftir leikinn í gær og hvað þeim fannst um leikinn.

Við fengum þá, Frey Brynjarsson, Kára Kristján Kristjánsson, Hafstein Ingason, Gísla Jón Þórisson, Einar Örn Jónsson og Arnar Jón Agnarsson til að tjá sig um þetta allt saman.

 

Freyr Brynjarsson: Þetta var ótrúlegur leikur. Aðrar eins 10 mín hefur maður bara ekki upplifða, þ.e.a.s. að ná að fara úr 13-20 í 22-22. Sigurhugsun klárlega til staðar hjá liðinu. Magnaður sigurleikur liðsheildarinnar. Áfram Haukar, næst er það Flensburg.

 

Gísli Jón Þórisson:  Við erum mjög ánægðir með þennann sigur sérstaklega úr því sem komið var þá var þetta frábær endurkoma í nánast töpuðum leik að margir héldu.

Einar Örn Jónsson:  Frábær karakter í liðinu í gær að koma tilbaka eftir að lenda 7 mörkum undir og vinna.  Baráttan og vörnin síðustu 20 mínúturnar var með því betra sem við höfum sýnt og þá koma ódýru mörkin en að sama skapi voru 40 mínúturnar fram að því ákaflega daprar.  Stuðningur áhorfenda var líka frábær í gær þó vissulega hefðu mátt vera fleiri á leiknum.

Arnar Jón Agnarsson:  Bara mikil gleði, gaman að vera ósigraður í Meistaradeildinni, þessi margumtalaða( innan haukaliðsins) siguhugsun kom í ljós í gær og við kláruðum leikinn þrátt fyrir frekar lélegan leik að okkar hálfur sérstaklega í fyrri hálfleik.

Kári Kristján Kristjánsson: Þetta var hreint út sagt ótrúlegur sigur þar sem við vorum komnir í hrikalega stöðu í byrjun seinni hálfleiks 20-13. Þetta var karakter sigur þar sem við lögðum aldrei árar í bát og náðum að klára leikinn. Frábær liðsheild og sigurhugsun.

Hafsteinn Ingason: Alveg ótrúlega gott afrek eftir að hafa lent 7 mörkum undir í seinni hálfleik. Það sem skóp þetta  var fyrst og fremst geðveik 3-2-1 vörn síðustu 20 mínúturnar í seinni hálfleik.

Við þökkum strákunum fyrir þetta og óskum þeim til hamingju með sigurinn. Næsti leikur Hauka í Meistaradeildinni er á fimmtudaginn í Þýskalandi gegn stórliði Flensburg. Við munum birta fréttir um þann leik hér á síðunni næstu daga.



Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…