Hvað er að frétta af 3. flokki kvenna?

3. flokkur kvenna er fyrir stelpur fæddar 1991 og 1992 þær eru þjálfaðar af Ómari Frey Rafnsyni og eru með 1 lið í sumar sem tekur þátt í A – deild.

Á Íslandsmótinu eru þær búnar að keppa 2 leiki þær unnu Aftureldingu í fyrsta leik sumarsins 5 – 3. Í öðrum leiknum gerðu þær jafntefli við Breiðabik 4 – 4 þar sem þær komust 2 – 0 yfir. Í bikarnum töpuðu þær fyrir Aftureldingu 6 – 4 eftir framlengingu.

Þess má geta að nokkrar af þessum stelpum er að spila reglulega með meistarflokki kvenna og stand sig bara mjög vel þar. Næsti leikur stelpnanna er á móti Val föstudaginn 29. júní á Hlíðarenda kl. 17:15.