Haukatap gegn HK í hörkuleik

Tjörvi Þorgeirson lék allra best í sókninni í gær en það dugði þó ekki til í þetta skiptið

Í gærkvöldi fengu Haukar lið HK í heimsókn á Ásvelli. Liðin voru fyrir leikinn í 4. og 5. sæti bæði með 14 stig og því leikurinn mjög mikilvægur því fjögur efstu sætinn gefa rétt til að spila um Íslandsmeistaratitilinn í lok móts. Þetta var 13. umferð mótsins af 21.

Lið Hauka barðist allan leikinn hetjulega í vörninni en sóknin varð liðinu að falli. Strákarnir virðast eiga erfitt með að finna taktinn sókninni þrátt fyrir að ágæt tilþrif sjáist inn á milli. Stöðugleikinn er ekki fyrir hendi.  Þjálfarinn og reynsluboltinn Halldór Ingólfsson tók fram skóna í þessum leik en hann mátti síns lítið gegn sterkri vörn gestana enda ekki í leikæfingu. Sóknarlega munaði Hauka mikið um að hafa Björgvin Hólmgeirsson í banni. Það fór svo að lokum að HK sigraði með einu marki, 22 – 23. Með tapinu duttu Haukar niður í 5. sætið en HK situr í því 4. með 16 stig, tveimur meira en Haukar.

Haukar í horni völdu mann leiksins og í þetta skiptið var það Tjörvi Þorgeirsson sem var valinn en aðeins eitt atkvæði skyldi á milli hans og Arons Rafns Eðvarðssonar markvarðar sem sýndi oft fína takta í leiknum. Tjörvi dróg aftur á móti vagninn lengstum í sókninni og gerði mörg falleg mörk en þau urðu sex alls. Fín mæting var á Ásvelli í gær og eiga áhorfendur hrós skilið fyrir góða stemmningu á pöllunum. Það er alveg magnað hvað leikirnir verða miklu skemmtilegri þegar fólk mætir og lætur í sér heyra.Næsti leikur Hauka í N1 deildinni er útileikur gegn Fram 17. febrúar næstkomandi og hefst hann kl. 19.30. Framliðið er sterkt í vetur og situr sem stendur í 2. sæti deildarinnar. 

Haukamynd: Jón Páll Vignisson.

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…