Haukastrákar fá Fram í heimsókn!

HaukarSunnudaginn 2. október fer fram sannkölluð handboltaveisla á Ásvöllum, en þá sækir okkur heim karlalið Framara. Framarar eru með ógnarsterkt lið á þessu tímabili og hafa að skipa einni sterkustu vörn landsins með landsliðsmanninn Ingimund Ingimundarsson í lykilhlutverki.

En eins og Haukarnir sýndu gegn HK í fyrstu umferð eru þeir skipaðir leikmönnum sem vel geta gert sig gildandi í deildinni og ætla sér stóra hluti í ár.

Það má því búast við hörkuflottum og spennandi leik á sunnudaginn, en leikurinn hefst klukkan 16:00.

Sjáumst þá.

Áfram Haukar!