Haukasigur í háspennu Hafnarfjarðarslag

Björgvin Hólmgeirsson skoraði 9 mörk fyrir HaukaBjörgvin Hólmgeirsson var hetja Hauka þegar þeir rauðklæddu sigruðu FH með eins markamun í Kaplakrika í gær. Staðan er því 3-0 fyrir Hauka í innbyrðisviðureignum þessara liða í vetur. Það er þó handknattleiksíþróttin sem er sigurvegarinn í stærra samhengi því leikirnir hafa verið frábær auglýsing fyrir íþróttina. Spenna, hraði, átök og frábær umgjörð í alla staði. Febrúarmánuður fer því vel af stað hjá Haukastrákunum sem eiga erfitt leikjaplan framundan. Undanúrslit í Eimskipsbikarnum kl. 16 á laugardaginn á Ásvöllum gegn HK, leik í deild gegn sama liði 17. febrúar og svo tveir Evrópuleikir á Spáni.

FH-ingar byrjuðu betur í gær og Pálmar Pétursson fór mikinn á milli stanganna. Þeir svartklæddu náðu mest þriggja marka forskoti en Haukar náðu að minnka muninn í eitt mark fyrir leikhlé með klókindum. Aron Kristjánsson skipti nafna sínum út úr markinu og lét Sigurberg koma óvænt inná og hann fékk boltann og minnkaði muninn í eitt mark, 13-12. Björgvin Hólmgeirsson var allt í öllu í sóknarleik Hauka í fyrri hálfleik og gerði sjö mörk. Guðmundur Ólafsson skoraði einnig falleg mörk úr horninu áður en Pálmar fór að sjá við honum. Varnarleikurinn fór að ganga betur hjá Haukum í seinni hálfleik, Einar Örn og Gunnar Berg fóru að láta til sín taka eftir að þeir komu inn og Freyr Brynjarsson fór að finna leiðina í netmöskvana eftir að hafa brennt af nokkrum færum. 

Haukar komust yfir 15-16 með glæsilegum marki Einars Arnar og höfðu svo tveggja marka forystu 19-21. Þá tóku FH-ingar leikhlé og skoruðu þrjú mörk í röð við mikinn fögnuð sinna áhorfenda. Allt kom þó fyrir ekki og Björgvin Hólmgeirsson sendi þrumufleyg af stað nokkrum sekúndum fyrir leikslok og tryggði Haukum sigur 24-25. Haukafólk trylltist af fögnuði. Við þökkum strákunum fyrir frábæra skemmtun og FH-ingum fyrir frábæra umgjörð og harða mótspyrnu.

Næsti leikur er sem fyrr segir kl. 16 á laugardaginn gegn HK í undanúrslitum Eimskipsbikarsins. Allir á Ásvelli! 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…