Haukar til Grindavíkur í kvöld

HaukarKarlalið Hauka í knattspyrnu heldur til Grindavíkur í kvöld til að mæta þar heimamönnum í sannkölluðum toppslag í 1.deildinni. Grindvíkingar sitja í öðru sæti deildarinnar með 23 stig en Haukar eru í þriðja sæti með 21 stig.

Sigur hjá okkar mönnum þíðir að þeir fara upp fyrir Grindavík í 2. sæti deildarinnar, en liðið sem endar í 2. sæti að móti loknu færist í úrvalsdeildina á næsta ári. Við hvetjum Haukafólk eindregið til þess að borða kvöldmatinn snemma og skella sér í þennan örstutta bíltúr til Grindavíkur, leikurinn hefst kl.19:15.