Lele Hardy til liðs við Hauka

Lele Hardy leikur með Haukum á næstu leiktíð - vf.is

Haukar hafa gengið frá ráðningu á erlendum leikmanni til að leika með kvennaliði félagsins á komandi leiktíð í Domonos-deild kvenna. Leikmaðurinn sem um ræðir er Lele Hardy og hefur leikið með Njarðvíkingum undanfarin tvö ár sem en Hardy var einnig þjálfari Njarðvíkurliðsins á síðustu leiktíð.

Hardy er þekkt stærð hér á landi og Haukum alls ekki ókunnug en hún varð til að mynda meistari með Njarðvíkurliðinu þegar suðurnesjaliðið sigrði Hauka í úrslitunum 2011-2012.

Hardy er 25 ára 178 cm á hæð og spilar stöðu framherja. Hún var efst í öllum tölfræði þáttum hjá Njarðvík á síðustu leiktíð með 29,1 stig, 19 fráköst og 5 stoðsendingar að meðaltali í leik.

Það er ljóst að Haukaliðið verður nokkuð öflugt á komandi leiktíð en inn í liðið koma einnig þær Guðrún Ámundadóttir og Íris Sverrisdóttir sem ekkert léku með liðinu á síðustu leiktíð vegna meiðsla.