Haukar sigurvegarar Hafnarfjarðarmótsins 2018

Meistaraflokkur karla í handbolta stóð uppi sem sigurvegari Hafnarfjarðarmótsins 2018 eftir 3 sigra af 3 mörgulegum en á þriðjudag og fimmtudag unnu þeir Val og Selfoss með sömu markatölu 35 – 31. Nú í dag var komið að rimmu Hafnarfjarðarliðanna þegar að Haukar og FH mættust. Þeim leik lauk líka með sigri Hauka í þetta skiptið 33 – 28.

Markahæstur Hauka í mótinu var Heimir Óli með 21 mark í 3 leikjum en á eftir honum komu Atli Már með 18 og Daníel Þór með 17 mörk. Eftir mótið voru þeir sem þóttu skara framúr verðlaunaðir en Magnús Óli Magnússon úr Val var markahæsti maður mótsins með 23 mörk úr leikjunum 3. Ásbjörn Friðriksson úr FH var valinn besti sóknarmaður mótsins og Daníel Þór Ingason úr Haukum var valinn besti varnarmaðurinn. Það var síðan Heimir Óli Heimisson úr Haukum sem var valinn besti leikmaður mótsins.

Þetta er annað undirbúningsmótið sem strákarnir vinna en þeir unnu Ragnarsmótið líka á dögunum það verður því gaman að fylgjast með stráknum á komandi tímabili en tímabilið hjá þeim hefst 12. september í Schenkerhöllinni þegar að FH kemur í heimsókn.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…