Haukar-Selfoss laugardagur 6. nóvember klukkan 15.45

Búið er að færa leik Hauka og Selfoss sem átti að vera nk. fimmtudag 4. nóvember.  Fram kom beiðni frá RÚV um að leikurinn yrði sjónvarpað og verðu hann því laugardaginn 6. nóvember klukkan 15.45.  Reiknar því RÚV með að um hörkuleik verði að ræða og hvetjum við því allt Haukafólk til að fjölmenna og hvetja strákanna.

Selfoss er í  7.sæti með tvö stig en þeir unnu Val en hafa tapað fyrir FH, Aftureldingu og Fram. Strákarnir eru í 5 sæti með 4 stig einsog Fram eftir að hafa tapað fyrir Akureyri og FH en unnið Aftureldingu og Val. Eru því stig í þessum leik gífurlega mikilvæg fyrir bæði lið til að missa ekki liðin í efstu sætunum ekki  of langt frá sér.

Selfoss er að spila í efstu deild eftir nokkurra ára hlé en Haukar spiluðu við þá úrslitaleikinn á Ragnarsmótinu þann 4. september sl. og töpuðu þá 34-32 eftir hörkuleik.

Liðið hjá okkur er í nokkuð góðu standi nema hvað Gunnar Berg er á leið í aðgerð í Svíþjóð í næstu viku og verður frá þar til í febrúar og Sveinn Þorgeirsson hefur en ekki náð sér að fullu í öxlinni eftir gróft brot á honum Hafnarfjarðarmótinu. Aðrir eru klárir í slaginn og má því búast við hörkuleik.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…