Haukar mæta þýsku liði í EHF-bikarnum

Meistaraflokkur karla í handbolta drógst í morgun á móti þýska stórliðinu Nordhorn í 16 – liða úrslitum í Evrópu keppni bikarhafa en dregið var í höfuðstöðvum evrópska handknattleikssambandsins í Vínarborg í hádeginu. Nordhorn liðið er sem stendur í 6. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með 17 stig eftir 8 sigra, 1, jafntefli og 4 töp. Ljóst er að það verður á brattan að sækja hjá Haukunum en Nordhorn liðið er geisisterkt og er með marga sterka leikmenn innan sinna raða.

Eins og Þjóðverjinn Holger Glandorf en hann er ein öflugasta vinstri handarskytta í heiminum í dag. Einnig er hinn gamal reyndi markmaður sænska landsliðsins Peter Genzel í Nordhorn. Þjálfari liðsins er gamla sænsk línutröllið Ola Lindgern og hefur hann verið að gera góða hlutu með líðið og komið því í fremstu röð í þýsku deildinni. Haukarnir eiga fyrri leikinn á heimavelli 14. eða 15. febrúar og seinni leikinn úti viku seinna.

Það verður því nóg að gera hjá leikmönnum Hauka og ljóst að evrópukeppnisævintýri meistaraflokksins er als ekki lokið. 

Aron Kristjánsson var afar ánægður með dráttinn enda verri kostir sem hefðu getið orðið staðreynd t.d. dýrari og lengri ferð. 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…