Haukar – Leiknir R. á fimmtudag

HaukarNú fer hver leikur að skipta gríðarlegu máli í 1.deild karla og það er engin undantekning á morgun, fimmtudag þegar Haukar og Leiknir Reykjavík mætast á Ásvöllum klukkan 18:30.

Haukar eru enn í bullandi baráttu um sæti í Pepsi-deild karla að ári og með hagstæðum úrslitum í loka umferðunum gæti allt gerst. Leiknismenn eru hinsvegar í slæmum málum í 11.sæti deildarinnar þar af leiðandi fallsæti og 6 stigum frá næsta liði.

Þessi sömu lið mættust fyrr í sumar á Leiknisvelli þar sem Haukar fóru með sigur af hólmi eftir að hafa verið undir í hálfleik. Það er hinsvegar kominn nýr maður í brúnna hjá Leiknismönnum síðan þá.

 

Við hvetjum Haukafólk að fjölmenna á Ásvelli á morgun og vera duglegt við að hvetja strákana áfram í síðustu leikjunum sem eftir er, því stuðningurinn skiptir jú, gríðarlegu máli.

 

Allir á Völlinn – ÁFRAM HAUKAR!

(Reynt verður eftir besta móti að sýna leikinn í beinni á HaukarTV)