Haukar-KA SS-bikar 16 liða úrslit
Strákarnir okkar unnu öruggan sigur á KA í 16-liða úrslitum SS bikarsins á Ásvöllum í kvöld. Lokatölur 40-31 eða 71 mark skorað.
Jafnræði var með liðunum fyrstu mínútur, Haukar skoruðu fyrsta markið, KA jafnaði og jafnt var 2-2, 3-3 og 4-4. Þá tóku okkar menn völdin og höfðu góða stöðu í hálfleik 21-15.
Í byrjun seinni hálfleik bættu strákarnir okkar við og forystan var fljótt komin í 12 mörk 30-18. Síðan var nánast formsatriði að klára leikinn sem lauk með 9 marka glæsilegum sigri 40-31.
