Haukar – HC Zomimak – Seinni hálfleikur í dag 16:00 í Schenkerhöllinni

Egill og Einar Pétur eru klárir í slaginn. Mynd: Eva Björk
Egill og Einar Pétur hita upp. Mynd: Eva Björk

Eftir frábæran sigur í gær gegn HC Zomimak 34 – 20 í EHF bikarnum þá er komið af seinni hálfleik í þessari rimmu en seinni leikur liðanna er í dag í Schenkerhöllinni kl. 16:00.

Haukastrákarnir mættu grimmir til leiks og eftir jafnar fyrstu mínútur þá gáfu Haukastrákarnir í og voru 17 – 7 yfir í hálfleik og gáfu gestunum svo ekki neinn möguleika í seinni hálfleik og uppskáru góðan 34 – 20 sigur. Markahæðstur í leiknum í gær var Janus Daði með 10 mörk og svo skoraði Adam Haukur 7 mörk einnig voru báðir markmenn Hauka í góðum gír og vörðu báðir um 50% skota sem komu á markið.

Þótt að útlitið sé kannski gott á má ekki líta á leikinn í dag sem formsatriði því lið HC Zomimak er hörkulið og má ekki búast við örðu en að leikurinn í dag verði hörkuleikur og mun stuðningur áhorfenda skipta sköpum eins og svo oft áður og um að gera fyrir fólk að fölmenna kl. 16:00 í Schenkerhöllina og styðja strákanna til sigurs. Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…