Haukar-Gorenja Meistaradeildin
Strákarnir okkar töpuðu 28-33 fyrir Gorenja á Ásvöllum í dag. Fyrri hálfleikur var arfaslakur hjá okkar mönnum og má segja að hann hafi gert útslagið en staðan i hálfleik var 11-20 fyrir Slóvenum. Það má þó segja strákunum okkar til hróss að í leikhléi tóku þeir sig saman í andlitinu og allt annað lið mætti til leiks í síðari hálfleik. Þeir náðu upp góðri baráttu og söxuðu á forskot gestanna og minnkuðu muninn í þrjú mörk 26-29 en nær komust þeir ekki og máttu þola tap 28-33.
Nú er staðan þannig í Meistaradeildinni að strákarnir okkar eru að nálgast vegginn fræga og verða því að spýta í lófana og taka danina í næsta leik.
