Haukar – Fylkir mfl. kk

Í dag fór fram síðasti leikur Hauka í DHL deild karla fyrir jól. Leikurinn var gegn Fylki á Ásvöllum.

Okkar strákar  byrjuðu mjög vel. Eftir 15 mínútna leika var staðan orðin 9-4 en Fylkismenn náðu að minnka muninn niður í 13-10 þegar um 25 mínútur voru liðnar. Haukar juku þá muninn og í hálfleik var staðan 19-13.

Fylkismenn byrjuðu síðari hálfleikinn að mun meiri krafti en okkar strákar og eftir 10 mínútna leik var staðan orðin 22-19. Þá hrukku strákarnir okkar í gang og á næstu 7 mínútum breyttu þeir stöðunni í 27-20. Fylkismenn tóku svo leikhlé í stöðunni 28-21 og virkaði það að einhverju leiti því Fylkismenn náðu að minnka muninn á næstu 8 mínútum í 31-27. Lokatölur voru svo 33-29 okkar strákum í vil.

Næsti leikur strákanna er ekki fyrr en 11. febrúar. Næsti leikur Hauka er 5. janúar þegar U liðið fer í heimsókn til FH.

ÁFRAM HAUKAR!!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…