Haukar fljúga hærra og komnir í undanúrslit en FH er úr leik

Adam Baumruk 2013
Adam Haukur var sterkur í gærkvöldi gegn FH og skoraði 8 mörk, jafnmörg og Árni Steinn, en þeir voru markahæstir í leiknum.

Meistaraflokkur karla lék sinn annan leik gegn nágrönnunum úr FH í 8-liða úrslitum úrslitakeppni Olísdeildarinnar í gær, fimmtudag. Haukar unnu fyrri leikinn á heimavelli FH, 29 – 32 eftir hörkuleik, og var því ekki við öðru að búast en að það sama yrði upp á teningnum í Schenkerhöllinni í gærkvöldi.
Jafnt var á með liðunum á öllum tölum í byrjun leiks og skiptust liðin á að komast 1 til 2 mörkum yfir en svo jafnaði hitt liðið metin jafnharðan. FH komst í 4 – 6 en þá skoruðu Haukamenn 3 mörk í röð og breyttu stöðunni í  7 – 6. Þessu frumkvæði héldu Haukar í nokkurn tíma og komust í 11 – 8 þegar um 20 mínútur voru búnar. Þá forystu létu gestirnir sér nægja og jöfnuðu strax í 11 – 11 og síðan var jafnt á öllum tölum út hálfleikinn og staðan að honum loknum hnífjöfn,  16 – 16.
Patrekur þjálfari virtist hafa gefið leikmönnum Hauka góð ráð í leikhléinu og breytti hann meðal annars varnarleiknum úr 6 – 0 í 5 – 1 og það virtist svínvirka því gestirnir áttu í stökustu vandræðum með að skora mörk í seinni hálfleiknum og staðan eftir um 10 mínútna leik var orðin 21 – 18. Áfram héldu FH-ingar að vera í vandræðum í sókninni á meðan Haukamenn voru skynsamir í sínum sóknarleik en á næstu mínútum juku Haukar forskotið og þegar um 8 mínútur lifðu leiks var forskotið orðið 6 mörk, 26-20. Það forskot náðu FH-ingar aldrei að brúa og lönduðu Haukamenn flottum 4 marka sigri 28 – 24 og sæti í undanúrslitum tryggt á meðan FH-ingar eru komnir í sumarfrí.
Það má með sanni segja að aðalskyttur Haukamanna hafi mætt til leiks í gær en Árni Steinn og Adam Haukur skoruðu hvert markið á fætur öðru með þrumuskotum fyrir utan en þeir voru markahæstir Haukamanna með 8 mörk hvor en á eftir þeim kom Einar Pétur með 5, Tjörvi og Janus með 3 og Þröstur með 1/1 mark. Í marki Hauka varði Giedrius 10/1 skot og Grétar Ari 2.
Eins og áður segir eru Haukamenn komnir í undanúrslit þar sem mótherjinn verður gríðarsterkt lið Valsmanna en þeir urðu deildarmeistarar sem þýðir það að þeir eru með heimaleikjaréttinn. Fyrsti leikur liðanna er fimmtudaginn 16. apríl í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda kl. 19:30 og hvetjum við allt Haukafólk að mæta og styðja Haukastrákana til sigurs.

Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…