Haukar-FH í Strandgötu kl.16:00 á laugardag

Haukar

Nú er komið að stelpunum í meistaraflokki Hauka að taka á móti vinkonum sínum í FH.  Það er alltaf mikil barátta þegar þessi lið mætast.  Síðast áttu liðin við 20. október á heimavelli þeirra svart/hvítu og þá þurftu Hauka stelpurnar að játa sig sigraðar 21-25 í afar kaflaskiptum leik.

Haukar eru þessa stundina í 8. sæti deildarinnar og FH í 5. sæti.  Ljóst er að ekkert verður gefið eftir.  Haukastelpur eru allar heilar og munu eflaust sjá til þess að við munum njóta skemmtilegrar viðureignar á laugardag. Nú er að duga eða drepast, við skorum á allt Haukafólk til að mæta á Strandgötuna og styðja stelpurnar okkar.

Áfram Haukar