Haukar fá liðsstyrk í handboltanum

Elías Már Halldórsson

Haukar hafa fengið mikin liðsstyrk í meistaraflokk karla í handbolta en þeir Elías Már Halldórsson og Jón Þorbjörn Jóhannsson hafa ákveðið að ganga til liðs við Hauka og spila með liðinu á næsta tímabili. 

Elías Már Halldórsson er á leið aftur til landsins eftir tvö góð ár í Norsku deildinni.  Elías hefur gert samning um að koma aftur til Hauka enda átti hann frábær tímabil með félaginu fyrir nokkrum árum.  Elías er örvhentur leikmaður sem getur bæði leikið í skyttustöðu og horni.  Elías kemur í stað Nemanja Malovic sem hefur snúið aftur til Svartfjallalands. Haukar binda miklar vonir við komu Elíasar enda hörku leikmaður með mikla reynslu. 

Jón Þorbjörn Jóhannsson leikmaður Mors-Thy í Dönsku úrvalsdeildinni hefur samið um að leika með Haukum næstu tvö árin.  Jón er hávaxinn línumaður og varnartröll.  Jón hefur öðlast mikla reynslu úr Dönsku úrvalsdeildinni. Jón lék undir stjórn Arons Kristjánssonar þegar Aron stýrði Skjern á árunum 2004-2007.  Jón lék síðast á Íslandi með Fram tímabilið 2007-2008 áður en hann fór aftur út til Danmerkur. 

Haukar vilja bjóða þessa leikmenn velkomna í Haukafjölskylduna og það verður gaman að fá að fylgjast með þeim á næsta tímabili.

Jón Þorbjörn 

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…