Haukar í Breiðholtið á fimmtudaginn

Haukar

Haukar spila sinn annan útileik í röð þegar liðið mætir Leikni í 8. umferð 1. deildar karla en leikurinn fer fram á Leiknisvellinum í Breiðholti og hefst kl. 19:15. Haukar eru í þriðja sæti deildarinnar með 14 stig eftir 2 – 2 jafntefli gegn Víking R. síðast liðinn laugardag.  

Leiknir er hins vegar í fimmta sæti með 12 stig.Með sigri í þessum leik komast Haukar í annað sæti deildarinnar þar sem BÍ/Bolungarvík, sem Haukar mæta einmitt á heimavelli laugardaginn 6. júlí, spilar ekki fyrr en á laugardag gegn Víking R.

Ljóst er að fimm til sex lið munu berjast um sætin tvö í Pepsi-deildinni og okkar menn eru að mæta mörgum af þessum liðum þessa dagana.  Stuðningur Hauka-fólks er því gríðarlega mikilvægur. Hauka-fólk er hvatt til að fjölmenna í Breiðholtið á fimmtudaginn kl. 19:15 og hvetja strákana til sigurs.