Haukar í úrslitaviðureignum – aldrei tapað

Áhorfendur hafa verið margir á Ásvöllum í vetur

Haukar hafa leikið oftast allra liða í úrslitakeppni Íslandsmótsins frá síðustu aldarmótum. Liðið hefur leikið til úrslita í sex af þeim sjö mótum sem endað hafa með úrslitakeppni, með úrslitaviðureign Hauka og Vals sem nú er í gangi meðtalinni, og það sem meira er, liðið hefur aldrei tapað úrslitaviðureign. Auk þess hefur liðið einu sinni orðið Íslandsmeistari samkvæmt fyrirkomulaginu sem var á síðustu þrjú árin, þ.e.a.s. efsta lið 1. deild varð Íslandsmeistari, og einu sinni hafnað í öðru sæti í þess háttar fyrirkomulagi, þá með jafnmörg stig og Fram sem fagnaði titlinum.

 

  • Fyrsta skipti sem Haukar léku til úrslita í úrslitakeppni eins og við þekkjum frá síðustu árum var árið 2000. Þá lék liðið gegn Fram og fagnaði Íslandsmeistaratitli í Strandgötunni á öðrum degi páska, 24. apríl.
  • Haukar léku aftur til úrslita árið eftir, þá gegn KA, en það var fyrsta árið sem Haukar léku á Ásvöllum. Haukar sigruðu þá viðureign sem varð æsispennandi og fór í fimm leiki. Haukar fögnuði sigri á Akureyri í fimmta og síðasta leik einvígisins þann 5. maí 2001.
  • Árið 2002 léku Haukar ekki til úrslita en það árið voru það KA og Valur sem áttust við. KA sigraði þá viðureign.
  • Árið 2003 kom enn einn Haukasigurinn í Íslandsmótinu. Það árið lék liðið gegn ÍR í úrslitaviðureigninni og sigraði einvígið 3 – 1. Íslandsmeistaratitlinum var fagnað í pakkfullu Austurberginu þann 11. maí 2003.
  • Áfram héldu Haukar að sigra Íslandsmótið. Árið 2004 voru mótherjarnir þeir sömu og í ár, einmitt bræðrafélag Hauka, Valur. Haukar fóru fremur létt með þá viðureign, fögnuðu 3 – 0 sigri í einvíginu á heimavelli þann 13. maí 2004. 
  • Sigurganga Hauka var ekki lokið hér en árið 2005 gerðist sá merki atburður að Haukar fóru taplausir í gegnum úrslitakeppnina. Í úrslitaeinvíginu mættu þeir liði ÍBV og fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum á Ásvöllum þann 5. maí 2005. Þess má til gamans geta að þetta ár sigraði kvennalið Hauka einnig ÍBV í úrslitaviðureigninni. 
  • Árið 2006 voru það Framarar sem fögnuðu Íslandsmeistaratitli eftir sigur í DHL deildinni. Þetta ár var í fyrsta sinn sem Íslandsmeistarar voru krýndir strax eftir deildarkeppni. Haukar voru jafnir Fram að stigum í mótinu en Fram sigraði á betri stöðu í innbyrðis leikjum.
  • Það voru Valsmenn sem hömpuðu Íslandsmeistaratitlinum árið 2007. Sama fyrirkomulag var á Íslandsmótinu þetta ár og það síðasta.
  • Í fyrra endurheimtu Haukamenn Íslandsmeistaratitilinn eftir glæsilegan sigur í N1 deild karla. Haukar voru með yfirburðarlið í deildinni og fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum á Ásvöllum þann 26. apríl 2008.
Það eru því Haukar sem hafa leikið í flestum úrslitaviðureignum auk þess að hafa hampað Íslandsmeistaratitlinum oftast á þessum 9 árum frá aldarmótum. Haukar hafa leikið í sex af sjö úrslitaviðureignum en næsta lið á eftir Haukum eru einmitt mótherjar þeirra í úrslitaviðureigninni í ár, Valur. Valur hefur leikið þrisvar til úrslita á þessum árum, helmingi sjaldnar en Haukamenn. KA kemur þar á eftir með tvær úrslitaviðureignir. 
 
Haukar er eina liðið sem hampað hefur Íslandsmeistaratitlinum oftar en einu sinni á þessari öld. Valur á möguleika á að breyta því í ár, sigri þeir Haukamenn í úrslitaeinvíginu sem nú er í gangi.  

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…