Haukar-Þróttur í kvöld

HaukarÍ kvöld fer fram stórleikur í 16-liða úrslitum bikarkeppni kvenna í knattspyrnu þegar Haukastelpur taka á móti Þrótt. Haukar leika sem kunnugt er í 1.deild en Þróttarar spila í úrvalsdeild og er því óhætt að fullyrða að framundan sé erfiður leikur fyrir Haukaliðið en á góðum degi getur liðið svo sannarlega unnið Þrótt.

Leikur stelpnanna hefst kl.19:15 og fer fram hér á Schenkervellinum á Ásvöllum. Aðgangur er ókeypis.