Haukar-ÍR bikar

Ekki gekk þetta upp hjá strákunum okkar í gærkvöldi er þeir töpuðu fyrir ÍR 31-34 í 8-liða úrslitum SS-bikarsins.

Leikurinn var jafn í byrjun en eftir miðjan fyrri hálfleik náðu gestirnir forystu og héldu henni það sem eftir var. Strákarnir okkar voru arfaslakir, virkuðu þreyttir og náðu aldrei takti í leiknum. Þeir misnotuðu ótal dauðafæri og vörnin var á köflum eins og gatasigti. ÍRingar mættu tilbúnir til leiks og uppskáru eftir því en því miður er draumurinn um Höllina úti þetta árið hjá strákunum okkar.

Nú er bara að hysja upp um sig og mæta tilbúnir til leiks á föstudaginn