Haukamenn á ferð og flugi
Þrír núverandi leikmenn Hauka og svo einnig Birkir Ívar Guðmundsson markvörður eru á leið til Noregs á morgun.
Þetta eru þeir Andri Stefan, Kári Kristján Kristjánsson og Sigurbergur Sveinsson, en þeir eru í svokölluð landsliðshóp B sem mun taka þátt í alþjóðlegu móti í Noregi um helgina.
Þeir spila fyrsta leikinn á föstudaginn gegn Ungverjalandi, síðan á laugardaginn mæta þeir landsliði Portúgals og svo verður síðasti leikurinn á sunnudaginn gegn gestgjöfum Noregs.
Landsliðshópur B er skipaður 17 handknattleiksmönnum. Átta þeirra leika erlendis þ.a.m. Birkir Ívar Guðmundsson.
Haukar og Fram eiga hvor um sig 3 leikmenn, Valur 2 leikmenn og Stjörnumenn 1.
Kristján Halldórsson þjálfari Stjörnunnar mun stjórna liðinu í Noregi, en auk hans völdu þeir Alfreð Gíslason, A-landsliðsþjálfari og Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka hópinn.
Hér er leikmannahópurinn í heild sinni;
Björgvin Gústafsson, Fram
Birkir Ívar Guðmundsson, Lübbecke
Andri Stefan Guðrúnarson, Haukar
Arnór Atlason, FC Köbenhavn
Arnór Þór Gunnarsson, Valur
Baldvin Þorsteinsson, Valur
Einar Hólmgeirsson, Flensburg
Fannar Þorbjörnsson, Fredrecia
Guðlaugur Arnarson, Malmö
Hannes Jón Jónsson, Fredrecia
Heimir Örn Árnason, Stjarnan
Jóhann Gunnar Jóhannsson, Fram
Kári Kristján Kristjánsson, Haukar
Rúnar Kárason, Fram
Sigfús Sigurðsson, Ademar Leon
Sigurbergur Sveinsson, Haukar
Sturla Ásgeirsson, Aarhus
– Arnar Daði Arnarsson skrifar.
