Haukakonur fá HK í heimsókn á morgun – Viktoría lengi frá

Viktórí Valdimarsdóttir í leik gegn Gróttu á Ásvöllum, líklega 2012_13
Viktoría Valdimarsdóttir verður lengi frá vegna meiðsla sem hún hlaut í leiknum gegn ÍBV í vikunni, mikil blóðtaka fyrir Haukaliðið.

Á morgun, laugardag, heldur Olísdeild kvenna áfram hjá Haukastelpum þegar þær frá lið HK í heimsókn í Schenkerhöllina, leikurinn hefst kl. 16:00. Þær gerðu góða ferð til Vestmannaeyja í vikunni og sigruðu lið ÍBV með einu marki, 27-28 (14-13). Það skyggði á sigurgleðina að Viktoría Valdimarsdóttir meiddist í leiknum og nú er ljóst að meiðsli hennar eru alvarleg. Hún fór í röntgen og segulómun í gær og þá kom í ljós slitið krossband ásamt fleiri áverkum svo sem beinmar og áverka á brjóski. Hún fer strax í spelku í 6 vikur frá nára eða þangað til hún fer í aðgerð. Það er ljóst að það verður töluverð bið í að við sjáum þessa flottu handboltakonu aftur á vellinum eða eins og faðir hennar orðaði það „sjáumst á vellinum 2016“.  Þetta er mikil blóðtaka fyrir liðið en Viktoría er búin að vera leika vel í vetur, bæði í vörn og sókn.
Nú sem endranær verður Haukafólk að styðja við bakið á liðinu og mæta með góða skapið á pallana og láta vel í sér heyra.

Áfram Haukar!

 

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…