Hauka-fólk í Víkina á laugardaginn kl. 14.00!

Haukar

Haukar mæta Víking R. í Víkinni á laugardaginn í 7. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu og hefst leikurinn kl. 14.00.  Haukar eru í þriðja sæti deildarinnar með 13 stig en Víkingar eru í fimmta sæti með 11 stig þannig að ljóst er um afar mikilvægan leik er að ræða.

Haukar unnu góðan sigur KA í síðustu umferð, 4 – 2, og viljum við að sjálfsögðu fylgja honum eftir með sigri í Víkinni á laugardaginn.

Hauka-fólk er hvatt til að fjölmenna í Víkina og hvetja strákana til sigurs.