Þrír leikmenn Hauka voru valdir í 22 ára landslið Íslands sem tilkynnt var í dag. Emil Barja, Haukur Óskarsson og Arnþór Freyr Guðmundsson sem nýlega gekk til liðs við Hauka frá Fjölni. Emil Barja gat ekki gefið kost á sér í verkefnið en Haukur og Arnþór munu verða fulltrúar Hauka í liðinu. Heimasíðan óskar þeim félögum góðs gengis í komandi verkefnum.