Handboltaveisla
Næsta laugardag verður sannkölluð handboltaveisla á Ásvöllum.
Kl. 14.00 spila stelpurnar við Fram. Haukastelpur hafa byrjað mótið með glæsibrag og unnið stórsigra í fyrstu tveim útileikjum og ætla sér örugglega að halda áfram á sömu braut og taka “vel” á móti Framdömum. Nú mæta allir Haukar og hvetja stelpurnar í sínum fyrsta heimaleik á Íslandsmótinu.
Kl. 16.30 er síðan stórleikur í Evrópukeppninn þegar strákarnir taka á móti Kolporter frá Póllandi. Fyrri leikurinn var um síðustu helgi í Póllandi og áttu strákarnir frábæran leik og náðu jafntefli á mjög sterkum heimavelli Pólverja. Við vonumst til að fylla Ásvelli og ná þar góðri stemmingu, því liðið okkar þarf á miklum stuðningi að halda til að komast áfram í Evrópukeppninni.
Nú mæta allir Haukar og ALLIR handboltaáhugamenn og styðja íslenskan handbolta.
