Handboltabúðir Hauka dagana 21.-23. mars

Aron Kristjánsson og Gunnar Magnússon ætla að sjá um handboltabúðir Hauka ásamt leikmönnum meistaraflokkanna dagana 21. – 23. mars. Farið verður í undirstöðuatriði handboltans. Kennd verða ýmis skotafbrigði, gabbhreyfingar og leikatriði. Við endum svo handboltabúðirnar á Páskaeggjavítakeppni þar sem markverðir meistaraflokkanna verða í marki.

 

  • Handboltabúðirnar eru fyrir alla krakka í 1.-7. bekk
  • Verð 6.900 kr, 50% systkinaafsláttur
  • Dagskrá frá kl. 09:00-12:00
  • Mikilvægt að muna eftir nesti og vatnsbrúsa
  • Skráning á námskeiðið er hér: http://goo.gl/forms/lj62nx2NDc
  • Hægt er að greiða fyrirfram og mæta með kvittun úr heimabanka., reikningur 0544-26-8954 kt. 670281-0279
  • Allar nánari upplýsingar veitir Gunnar Magnússon gunnar@haukar.is

 

Mán 21.mars Þri 22.mars Mið 23.mars
9:00-10:15 Tækniþjálfun Tækniþjálfun Tækniþjálfun
10:15-10:45 Nesti og frjálst Nesti og frjálst Nesti og frjálst
10:45-12:00 EM 2016 keppni á milli liða Spil og Hraðupphlaup Spil

Páskaeggjavítakeppni

 

Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…