HANDBOLTABÚÐIR HAUKA 17.-20. MARS

Handboltabúðir Hauka að Ásvöllum

Vikuna 17.-20.mars

 

  • Haldið 17.-20.mars að Ásvöllum. Dagskrá frá 09-12 alla dagana með nestispásu.
  • Mikilvægt að allir mæti með nesti með sér alla dagana.
  • Fyrir stelpur og stráka í 1.-8.bekk. (8.-5.flokkur karla og kvenna)
  • Skipt verður í hópa eftir aldri.
  • Boðið er upp á barnagæslu frá kl 08:00 alla dagana.
  • Verð per einstakling er 5000,-kr.  Aðeins er borgað fyrir 2 fyrstu systkynin önnur fá frítt. 
  • Hægt að greiða á staðnum eða millifæra á reikning 1101-26-8307. kt. 140772-5349. Skrifa nafn barns í tilvísun. Það þarf síðan að framvísa greiðslukvittun úr heimabanka.
  • Skráning fer fram með því að senda upplýsingar á netfangið gisli12@gmail.com með nafni barns og kennitölu ásamt gsm númeri foreldris.
  • Umsjónarmaður hanboltabúðanna verður Gísli Rúnar Guðmundsson, íþróttafræðingur, markvarðaþjálfari og leikmaður mfl. Hauka.
  • Leiðbeinendur í handboltabúðunum verða leikmenn Hauka í mfl karla og kvenna.

 

Allir sem skrá sig í hanboltabúðirnar fá..

 

  • Frímiða á leik Hauka og Vals í N1-deild karla sem fram fer sunnudaginn 30. mars.
  • Þátttökurétt í vítakeppni á markverði meistarafloks þar sem RISA-Páskaegg er í verðlaun.
  • Glæsilegan vatnsbrúsa frá Fitness Sport
  • Plakat af meistaraflokki karla og kvenna
  • Viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna
  • Pylsuveisla seinasta daginn.

 

 

 

NÝJAR ÁHERSLUR

  • Vilt þú kunna að finta eins og Beggi, Freyr og Ramune
  • Kannt þú skotfintuna hans Andra Stefans
  • Vilt þú læra hornaskot af Hönnu Stefáns og Ernu eða snúningana hans Jón Karls
  • Hvernig væri að læra varnarbrellurnar hjá Gunnari Bergi, Hörpu Melsted og Arnari Péturssyni
  • Markverðir meistaraflokkanna leiðbeina ungum markvörðum

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Dagskrá handboltabúðanna

 

Mánudagur 17.mars

Þriðjudagur 18.mars

Miðvikudagur 19.mars

Fimmtudagur 20.mars

08:00-09:00

Gæsla

 

09:00-10:15

Krefjandi boltaæfingar

 

10:15-10:45

Nesti

 

10:45-12:00

Fljúgandi handbolti

08:00-09:00

Gæsla

 

09:00-10:15

Skotþjálfun-Ýmis afbrigði

 

10:15-10:45

Nesti

 

10:45-12:00

Eldknöttur

 

08:00-09:00

Gæsla

 

09:00-10:15

Ýmsar þrautir og æfingar.

 

10:15-10:45

Nesti

 

10:45-12:00

EM á Ásvöllum

08:00-09:00

Gæsla

 

09:00-10:15

Gabbhreyfingar og

Markvarðaþjálfun

 

10:15-10:45

Nesti

 

10:45-12:00

Vítakeppnin mikla

og Pylsuveisla

 

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…