Hafnarfjarðarslagur í bikarnum í dag

Sigurbergur og félagar þurfa að komast í EvrópukeppnisgírinnÞað er sannkallaður stórleikur í 8 liða úrslitum Eimskipsbikar karla í dag þegar Hafnarfjarðarliðin Haukar og FH mætast í Kaplakrika kl. 16. Haukastrákarnir eiga harma að hefna þar sem þeir svarthvítu unnu bikarslaginn fyrir ári í eftirminnilegum og dramatískum leik. Búast má við fjölmenni á áhorfendapöllunum og frábærri stemmningu. Haukafólk er hvatt til að mæta í rauðu.

Haukar urðu síðast bikarmeistarar árið 2002 en það var í þriðja sinn sem liðið vann titilinn, fyrri skiptin voru árið 1997 og 2001. Frá árinu 2002 hefur liðið unnið fimm Íslandsmeistaratitla og fimm deildarmeistaratitla án þess að fara alla leið í bikarnum. Þeir svarthvítu hafa ekki unnið bikarinn í fimmtán ár en liðið hampaði titlinum árin 1992 og 1994. Það er því ljóst að hungrið er til staðar hjá leikmönnum beggja liða og eins og alla jafna í bikarslag þá vinnur það lið sem berst meira fyrir hlutunum.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…