Hátíð á Ásvöllum

Stærsti fótboltaviðburður á Ásvöllum verður á morgun, er Haukar spila gegn Landsbankadeildarliði Fylkis í 8 – liða úrslitum Visabikarsins.

Leikurinn hefst klukkan 19.15 en klukkan 18.00 verður öllum Haukurum boðið upp á pylsur og drykk í stóra íþróttahúsinu á Ásvöllum. Einnig verður boðið upp á andlitsmálningu fyrir yngri kynslóðina.

Allt Haukafólk nær og fjær eru hvatt til að mæta á leikinn tímanlega og taka þátt í fjörinu sem verður á morgun.

Mætum í Rauðu og hvetjum strákana til sigurs, ÁFRAM HAUKAR!