Haukar – Fjarðabyggð

Á sunnudaginn mæta strákarnir Fjarðabyggð á Ásvöllum í 1.deild karla.

Leikurinn hefst klukkan 14:00, stundvíslega.

Gengi Fjarðabyggðar hefur ekki verið glæsilegt og ekki eins gott og búist var við. Liðið er í 9.sæti með 12 stig, jafn mörg stig og Leiknir.

Haukar eru hinsvegar í 4.sæti með 21 stig og eru án efa hungraðir í sigur eftir tvö óverðskulduð töp í röð.

Við hvetjum alla til að mæta á völlinn og styðja strákana til sigurs. Strákarnir sýndu það gegn Fylki að þeir eigi fullan rétt á að blanda sér í toppbaráttuna um sæti í Landsbankadeildina að alvöru og allt Haukafólk getur átt þátt í að það verði að veruleika.

Allir á völlinn!!

Haukar – Fjarðabyggð á sunnudaginn klukkan 14:00.

Á miðvikudaginn mæta strákarnir síðan liði Víkings Reykjavíkur á Víkingsvelli klukkan 20:00 um er að ræða þar alvöru toppslag.