Jóna Sigríður Jónsdóttir verður á láni hjá Haukum frá Stjörnunni út þetta tímabil. Jóna er uppalin í Haukum og lék um árabil með Meistaraflokki kvenna en gekk til liðs við Stjörnuna árið 2004 og hefur síðan þá leikið 64 leiki í Úrvalsdeild og bikar með Stjörnunni. Jóna verður í leikmannahópnum í kvöld þegar Haukar fara í Laugardalinn og mæta Þrótti kl. 20:00 á Valbjarnarvelli.