Háspenna og handboltahátíð í Hafnarfjarðarslag

Freyr Brynjarsson skorar mikilvægt hraðaupphlaupsmark

Það var búist við dramatík. Það var búist við spennu. Það var búist við stemmningu. Stórleikur Hafnarfjarðarliðanna í Eimskipsbikarnum stóð undir þessum væntingum og meira til. Tvíframlengdur, hörkuspennandi 80 mínútna leikur þar sem hvort liðið sem var gat farið með sigur af hólmi. Sannkölluð handboltahátíð fyrir þá sem mættu í Krikann og allan þann fjölda sem fylgdist með á skjánum. Eitt liðið varð þó að draga lengstra stráið og að þessu sinni voru það Haukar. FH leiddi þó nær allan tímann í hefðbundnum leiktíma og eiga hrós skilið fyrir frábæran leik og frábæra umgjörð um þennan leik sem verður lengi í minnum hafður. Einar Örn tryggði Haukum framlengingu með enn einu flautumarkinu. Freyr og Sigurbergur skoruðu svo 4 síðustu mörk Hauka í leiknum. Lokatölur urðu 37-38.

FH-ingar mætu mjög grimmir til leiks, léku framliggjandi vörn á móti Björgvini og Sigurbergi og komust í 3-0. Haukar sótt svo í sig veðrið og jöfnuðu 4-4. Markvarslan í fyrri hálfleik var mun meiri FH-megin og var það ein helsta skýringin á þriggja marka forystu FH í leikhléi, 18-15. Hálfleikstölur voru því nærri því að minna á lokatölur í toppslag Vals og Hauka á dögunum. Rétt fyrir leikhlé fékk Ólafur Gústavsson rautt spjald fyrir að fara harkalega í Elías Má. FH-ingar létu það ekki á sig fá og náðu góðri forystu um miðbik seinni hálfleiks  21-16. Birkir Ívar byrjaði að sækja í sig veðrið og hið sama gilti um Sigurberg í sókninni. FH hafði þó áfram forystuna og voru þremur mörkum yfir þegar 10 mínútur voru eftir en þá höfðu Haukar unnið kafla þar sem þeir voru tveimur leikmönnum fleiri einungis 1-0. Guðmundur Árni var ískaldur á vítalínunni trekk í trekk á þessum kafla og jafnaði m.a. leikinn 28-28 þegar tvær mínútur voru eftir. Í framhaldinu skoraði hinn ungi Benedikt Kristinsson fyrir FH og hinar kunnugulegu tölur 29-28 blöstu við áhorfendum þegar örfáar sekúndur voru eftir en þannig enduðu einmitt tveir tapleikir á Kaplakrika í fyrra. Haukamenn ætluðu hins vegar ekki að tapa með þeim hætti eina ferðina enn og Einar Örn Jónsson tryggði framlenginguna með marki á lokasekúndu eftir góða sendingu frá Sigurbergi.

Í fyrri háfleik fyrri framlengingar var FH með forystu þrátt fyrir að Haukar hefðu byrjað með boltann en Sigurbergur skoraði þá ótrúlegt mark beint úr fríkasti og staðan 31-31 í hléi. Björgvin Hólmgeirsson kom Haukum svo yfir í fyrsta skiptið síðan í fyrri hálfleik 32-33 en Bjarni Fritzson jafnaði úr víti en hann var ótrúlega öruggur á línunni. Því varð að framlengja á nýjan leik. Enn var jafnt 34-34 eftir fyrri hálfleik seinni framlengingar. Sigurbergur og Freyr skoruðu svo fjögur glæsileg mörk í seinni hálfleiknum sem tryggðu Haukum sigur.

Sigurinn var ótrúlega mikilvægur fyrir Haukastrákana sem eru komnir í fjögurra liða úrslit í þessari skemmtilegu keppni en bæði lið eiga hrós skilið fyrir frábæra skemmtun.

Fullt af myndum úr leiknum

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…