Grétar Ari lánaður á Selfoss

Hinn ungi og efnilega markmaður Grétar Ari Guðjónsson hefur verið lánaður á Selfoss og mun hann því leika með þeim á næsta tímabili. Grétar Ari hefur verið aðalmarkmaður U20 ára landsliðsins og er einn efnilegasti markmaður landsins. Grétar Ari hefur tekið stórt skref í vetur þar sem hann hefur verið varamarkmaður í m.fl. karla. Með hagsmuni Grétars í huga var það ákveðið að lána hann á Selfoss þar sem hann mun fá mikinn spiltíma og tækifæri til að þroskast ennþá meira sem leikmaður.