Giedrius með stórleik í góðum sigri Hauka gegn ÍBV – næsti leikur í dag og með sigri getum við tryggt okkur Íslandsmeistaratitilinn

Giedrius Morkunas var maður leiksins á laugardaginn með 57% markvörsluRimman um Íslandsmeistaratitilinn hélt áfram í Schenkerhöllinni að Ásvöllum á laugardaginn. Bæði lið mættu ákveðin til leiks og eftir 16 mínútna leik var staðan 7 – 7 og allt í járnum. Þá kom flottur kafli hjá Haukapiltum þar sem þeir skoruðu 7 mörk gegn 3 og hálfleikstölur voru 14 – 10. Síðari hálfleikur byrjaði með svipuðum hætti. Haukar höfðu frumkvæðið með góðri sókn og sterkum varnarleik en á bakvið vörnina stóð maður leiksins, Giedrius Morkunas, sem varði hvað eftir annað bæði dauðafæri og langskot. Giedrius var líklega að spila sinn allra besta leik í vetur og það var magnað að fylgjast með þessum flotta keppnismanni á milli stanganna. Aðrir leikmenn áttu fínan dag en liðsheildin var sterk og það er nákvæmlega það sem við þurfum til að landa svona flottum sigrum.

Mörk Hauka: Einar Pétur 5, Sigurbergur 5/4, Brynjólfur Snær 3, Árni Steinn 3, Tjörvi 3, Jón Þorbjörn 3, Elías Már 2, Þröstur 1, Jónatan 1, 
Markvarsla: Giedrius 25/2 (57%).

Nú erum við í dauðafæri til að verða Íslandsmeistarar í næsta leik sem fer fram í Vestmannaeyjum í dag, þriðjudaginn 13. maí kl. 19:45. Nú erum við aftur komnir í bílstjórasætið og öll pressa verður á Eyjamönnum þar sem þeir mega ekki tapa en við getum tapað sem myndi þýða oddaleik á Ásvöllum fimmtudaginn 15. maí kl. 19:45.
Áhorfendur voru stórkostlegir á laugardaginnog hvöttu liðið sitt duglega áfram. Ég segi enn og aftur að með svona stuðning eru okkur allir vegir færir. Í útsendingu sjónvarpsins talaði þulur ítrekað um hvað stuðningsmenn andstæðinganna væru magnaðir og að það væru laus sæti í stúkunni hjá okkur og að stuðningsmenn andstæðinganna væru jafnvel fleiri. Við látum ekki svona „komment“ á okkur fá en samt er nauðsynlegt að benda á að Ásvellir er eitt af stærri keppnishúsum í handbolta á Íslandi með sæti fyrir 2.200 manns. Stúkan Haukamegin tekur rúmlega 60% af þessum fjölda eða tæplega 1.400 manns. Flest íþróttahús sem er verið að sýna beint frá leikjum í handbolta og körfubolta taka 700 – 1.000 manns í sæti. Húsið í Vestmannaeyjum er fullt upp í rjáfur með 1.000 manns. Við höfum verið með rúmlega 1.700 manns á þessa tvo heimaleiki gegn ÍBV sem er meira en á marga leiki í efstu deild í knattspyrnu. En gott og vel þetta var bara til upplýsinga. 

Nú þurfum við að fjölmenna til Eyja og freista þess að klára þetta einvígi þar í dag. Hópferð verður frá Ásvöllum og farið verður af stað til Landeyjarhafnar af stað kl. 16:00 og kostar sætið kr. 2.500. Vinsamlegast pantið sæti með því að senda póst á Dísu, innkaup@haukar.is eða hringja í 525 8700.
Nú mætum við í rauðu með bros á vör og styðjum Hauka til sigurs í Olísdeildinni 2014.

Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…