Góðir kaflar dugðu ekki til og annað tapið í röð staðreynd

Sigurbergur var markahæstur í leiknum með 6/1 mörkÚrslitakeppnin í Olísdeildinni hélt áfram í gær og fóru Haukapiltar í Kaplakrikann. Það var allt annað sjá til liðsins en í fyrstu viðureignni og góð byrjun lofaði góðu en eftir um 9 mínútna leik var staðan 1 – 4. Haukar náðu þó ekki að halda því forskoti lengi því FH náði fljótlega að jafna og svo skiptust liðin á að skora en góður kafli andstæðinganna í lok fyrri hálfleiks færði þeim þriggja marka forystu í hálleik, 11 – 8. Þar munaði mestu frábæra frammistaða markmanns FH og að sama skapi slök nýting hjá okkar mönnum sem t.d. náðu ekki vel að nýta sér yfirtölu eftir að FH ingar týndust hvað eftir annað útaf með tveggja mínútna brottvísun og voru á kafla þremur færri. Í síðari hálfleik virtust FH ætla að stinga okkar menn af en á 39. mínútu var staðan orðin 15 – 10. En þá kom frábær kafli okkar manna og Einar Ólafur lokaði markinu sem gerði það af verkum að á 45. mínútu var staðan orðin jöfn, 15 – 15. Lokakaflinn var æsispennandi en því miður féll þetta ekki okkar megin og endaði leikurinn með sigri FH, 22 – 19.

Í dag var það sóknin sem varð okkur að falli því vörnin og markvarslan var lengst af í góðu lagi og mikil barátta var í liðinu, það gekk bara oft illa að skora. Einar Ólafur átti góðan dag en hann lék bara í síðari hálfleik og varði 11 skot, þar af 1 víti.
Nú eru okkar menn komnir með bakið upp að veggnum fræga. Þeir verða að vinna næstu þrjá leiki til að sigra þetta einvígi og miðað við tölfræði vetrarins þá er það vel gerlegt. Við skulum bera höfuðið hátt og mæta í Schenkerhöllina á sunnudaginn kemur kl. 16:00 og styðja okkar menn til sigurs.

Mörk Hauka: Sigurbergur Sveinsson 6/1, Tjörvi Þorgeirsson 5, Árni Steinn Steinþórsson 4, Elías Már Halldórsson 2, Jón Þorbjörn Jóhannsson 1, Þórður Rafn Guðmundsson 1.
Markvarsla: Einar Ólafur Vilmundarson 11/1 (50%), Giedrius Morkunas 7 (39%).

Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…