Fyrsti heimaleikurinn í N1 deildinni næstkomandi sunnudag

Nemanja Malovic átti stórleik í sínum fyrsta deildarleik fyrir Hauka og skoraði 12 mörkStrákarnir í handboltanum spila fyrsta heimaleik sinn næstkomandi sunnudag, 2. okt. Leikurinn er gegn Fram en bæði Haukar og Fram unni fyrstu leiki sína. Fram lagði Íslandsmeistara FH örugglega og greinilegt að þeir koma sterkir til leiks. Haukastrákarnir unnu góðan sigur á HK með frábærum seinni hálfleik í Digranesi.
VIP rýmið (Haukar í horni) opnar kl. 15.00 þar sem boðið verður upp á vöfflur með rjóma ásamt frábærum félagsskap. Aron Kristjáns mætir fyrir leik og spjallar við Hauka í horni um leikinn og hvaða línur verði lagðar til að innbyrða sigur. 

Leikurinn hefst kl. 16.00 og nú mæta allir á völlinn og skapa flotta umgjörð og stemmningu.

Áfram Haukar!