Fréttatilkynning frá Handknattleiksdeild Hauka

Fréttatilkynning frá Handknattleiksdeild Hauka

Nú um miðjan mars var gengið frá ráðningu Arons Kristjánssonar og mun hann taka við nýju starfi hjá Handknattleiksdeild Hauka sem Framkvæmdastjóri íþrótta- og markaðsmála.  Aron mun taka til starfa þegar hann lætur af störfum nú í sumar sem þjálfari Danmerkurmeistara Álaborgar. Aron mun í fyrstu sinna starfinu samhliða þjálfun á karlalandsliði Bahrain.

Fyrsta verk Arons ásamt Gunnari Magnússyni íþróttastjóra snýr að undirbúningi næsta tímabils sem felst í greiningu og uppstillingu á þjálfurum yngri flokka deildarinnar sem og leikmannamálum meistaraflokkanna.  Stjórn handknattleiksdeildarinnar er ánægð með þessa viðbót við það góða starf sem unnið er nú þegar og væntir mikils af starfi Arons á bæði félagslega og faglega sviðinu, sem og við sölu- og markaðssetningu handboltans í Haukum.