Deildarkeppnin í skák!
Þeir félagar sem að hafa áhuga á að taka þátt í Íslandsmóti Skákfélaga helgina 7-9 október næstkomandi, vinsamlegast hafið samband við Inga (s:695-0779) eða Aua (s:821-1963) eða í netfangið aui@simnet.is
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Þeir félagar sem að hafa áhuga á að taka þátt í Íslandsmóti Skákfélaga helgina 7-9 október næstkomandi, vinsamlegast hafið samband við Inga (s:695-0779) eða Aua (s:821-1963) eða í netfangið aui@simnet.is
Sverrir Þorgeirsson gerði sér lítið fyrir og hafnaði í öðru sæti á nokkuð sterku hraðskákmóti Garðabæjar, sem fram fór í gærkveldi. Fjórir Haukamenn tóku þátt í mótinu. Sverrir hefur jafnt og þétt verið að þokast nær toppmönnunum á Haukaæfingunum og er það aðeins tímaspursmál hvenær hann fer að vinna æfingarnar reglulega. Við látum hér frásögn…
Mér datt í hug að koma með smá nýjung hér inn á síðuna. það væri gaman ef við gætum deilt með okkur skemmtilegum skáksögum sem menn þekkja, eða hafa upplifað á sínum skákferli. Ég vil hvetja alla þá sem hafa frá einhverjum skemmtilegum skáksögum að segja að senda mér mail á th_fannar@hotmail.com Ég ætti nú…
Árshátíð og uppskeruhátíð knattspyrnudeildar Hauka verður haldin föstudaginn 30 sept á Ásvöllum Mæting er kl 20.00 og borðhald hefst eigi síðar en kl 21.00. Miðar verða til sölu á Ásvöllum og í Fjölsport í Firði og hjá Siggu Kristjáns á Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra sem er á þriðju hæð í Firði. Miðasala stendur til miðvikudags…
Góð mæting var á æfinguna á þriðjudaginn, en alls voru þátttakendur 18. Svo fór að lokum að Þorvarður vann með 15 v. Af 17, eftir hörkubaráttu við Árna sem sýndi loks hvað í honum býr eftir arfaslakt mót í Garðabænum. Mikið var um óvænt úrslit, t.d. gerðist Kristján Ari formannabani og vann bæði Auðberg og…
Í gær þann 19.september kom í ljós að við í meistaraflokki kvenna höfum fengið fulltrúa í U-19! En það er engin önnur en Linda Rós Þorláksdóttir. Næstkomandi sunnudag þann 25.september mun hún ferðast með landsliðinu til Bosníu og mun þar keppa í undanriðli fyrir EM 2006. Við í meistaraflokki kvenna óskum henni allar ynnilega til…
Haukafélagar nær og fjær. Fyrirhuguð er hópferð til Danmerkur helgina 5./6. nóvember á leik mfl.karla við Arhus í Meistaradeild Evrópu. Þetta verður Hópferð að hætti Hauka sem enginn má missa af. Fylgist með nánari upplýsingum á næstunni.
Nú er þassu tímabili lokið og nýtt tímabil fer senn að byrja. Fyrir þær sem vantar flíspeysur þá er þeim bent á að hafa samband við Siggu í síma :565 3773 – 695 5773
GM Stellan Brynell (2484)hefur gengið til liðs við Hauka. Hann er vinur Björn Ahlander. Velkominn Stellan.
Ólafur B. Þórsson (2220) hefur gengið til liðs við Skákdeild Hauka. Við bjóðum Ólaf hjartanlega velkominn.