Fréttasafn

  • Spjallborðið

    Vil minna menn á spjallborðið, sem má nálgast í tenglum. Gaman væri að fá skákskýringar frá Haustmótunum, hvort sem í bænum eða norðan heiða. Árni setti nýlega inn þrautir, gaman væri að fá fleiri slíkar og fyrir okkur skúnkana væri ekki verra að fá jafnvel svör líka!

  • Tvöfaldur sigur í atskákinni!

    Haukar hófu keppni í bikarkeppni TG í atskák mánudagskvöldið 3.október. Keppnin fór fram í skákhöll Hauka að Ásvöllum. Mikið var um forföll, t.d. voru aðeins 3 af nýju mönnunum mættir til leiks. Það kom þó ekki að sök, því að bæði A- og B- liðin höfðu sigur, en tæpt var það þó. A-liðið vann TG…

  • Æfing 27. september

    13 manns voru mættir á æfinguna sem fram fór á þriðjudaginn. Þorvarður hafði það enn einu sinni, en eftir mikla baráttu. Árni gat náð honum í lokaskákinni, sem var hörkuspennandi, en hún endaði að lokum með jafntefli, eitt af 3 hjá Varða, en hann tapaði aldrei. Mikil barátta var um 3ja sætið, á milli Svanbergs,…

  • Haukar-St. Otmar mfl.kvenna

    Stelpurnar okkar kláruðu dæmið og unnu St. Otmar í seinni leik liðanna á Ásvöllum í dag, lokatölur 29-20. Eftir stórsigur Hauka í gær var ljóst í upphafi leiks í dag að einbeiting leikmanna var ekki alveg í lagi. Mikið var um mistök, lítið um varnir og sóknin í hálfgerðu bulli. Haukar skoruðu fyrsta markið og…

  • Skákin norðan heiða

    Undirritaður tekur nú þátt í Haustmóti Skákfélags Akureyrar. tefldar eru níu umferðir í mótinu. Tíu einstaklingar eru skráðir til leiks og fær maður þvi að tefla við alla í mótinu. Nú þegar þessi orð eru skrifuð eru þrjár umferðir búnar í mótinu. Ég kom inn í mótið í annari umferð og á því eftir að…

  • St. Otmar – Haukar mfl.kvenna

    Stelpurnar okkar unnu öruggan stórsigur á svissneska liðinu St.Otmar í fyrri leik liðanna. Þetta var útileikur Hauka og lokatölur 25-41. Eftir rúmlega 3 mín. leik var staðan 1-5 fyrir Hauka og tók þá þjálfari gestann leikhlé en það breytti litlu. Stelpurnar okkar létu ekki af hendi forystuna og staðan í hálfleik 15-20 fyrir Hauka. Í…

  • Haukar-Arhus mfl.karla

    Strákarnir okkar töpuðu með einu marki fyrir Arhus á Ásvöllum í dag. Lokatölur 27-28. Haukar byrjuðu leikinn vel og eftir um sjö mín. leik var staðan 5-2. Þá kom afleitur kafli hjá okkar mönnum og breyttu gestirnir stöðunni í 7-11 á næstu mínútum. Haukar náðu þó að minnka muninn fyrir hálfleik í 14-16. Í síðari…

  • Meira um Evrópuveisluna

    Fréttatilkynning Karlalið Hauka mætir danska úrvalsdeildarliðinu Århus GF í C-riðli meistaradeildar Evrópu á laugardaginn kl. 16:00 á Ásvöllum. Århus GF er eitt sterkasta lið Danmerkur en það lenti í öðru sæti á síðustu leiktíð. Liðið er undir stjórn hins þekkta þjálfara Erik Veje Rasmussen, leikmanni danska landliðsins til margra ára og fyrrverandi þjálfari þýska stórliðsins…

  • Evrópuveisla á Ásvöllum

    Um helgina verður sannkölluð Evrópuveisla á Ásvöllum en þá spila Haukar þrjá leiki í Evrópukeppni. Á laugardag kl. 16:00 hefja strákarnir okkar leikinn í Meistaradeild Evrópu og mæta í fyrsta leik danska liðinu Arhus. Að þeim leik loknum eða kl. 18:30 er komið að stelpunum okkar er þær mæta svissneska liðinu St. Otmar í fyrri…