Í gær þann 19.september kom í ljós að við í meistaraflokki kvenna höfum fengið fulltrúa í U-19! En það er engin önnur en Linda Rós Þorláksdóttir. Næstkomandi sunnudag þann 25.september mun hún ferðast með landsliðinu til Bosníu og mun þar keppa í undanriðli fyrir EM 2006. Við í meistaraflokki kvenna óskum henni allar ynnilega til hamingju með þetta og óskum henni góðs gengis!!!