Fram – Haukar á miðvikudagskvöld

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/fram mynd  6.jpgMeistaraflokkur kvenna leikur við Fram á miðvikudagskvöld á Framvellinum og hefst leikurinn kl. 20:00.

Haukastúlkur hafa spilað vel í síðustu þremur leikjum, skilað níu stigum í hús og skorað tólf mörk en ekki fengið á sig mark. Það er vonandi að þetta góða gengi haldi áfram.

Til að svo verði þurfa Haukastúlkur að koma einbeittar til leiks. Framstúlkur verða nú á heimavelli en fyrri leikurinn við Fram á Ásvöllum var mikill barningur og urðu úrslit þess leiks naumur sigur Hauka eða 1-0.

Við látum nokkrar myndir frá þeim leik fylgja með, ásamt mynd af öðru marki Hauka í síðasta leik við Tindastól, og hvetjum um leið stuðningsmenn Hauka til að mæta á Framvöllinn og styðja stelpurnar okkar til sigurs.

Áfram Haukar!

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/mynd . no 2.jpgimages/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/fram mynd  2.jpgimages/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/fram mynd  10.jpgimages/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/fram mynd  3.jpgimages/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/fram mynd  9.jpgimages/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/fram mynd  4.jpgimages/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/fram mynd  5.jpgimages/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/fram mynd  8.jpgimages/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/fram mynd  1.jpg