Forsala á bikarleikina, Haukar eina félagið sem er með karla – og kvennalið í undanúrslitum

Coca Cola bikarkeppnin 2014Um næstu helgi fer fram bikarhátíð í handboltanum. Hátíðin hefst á undanúrslitaleikjunum sem nú verða leiknir á sitthvorum deginum. Stelpurnar spila á fimmtudeginum 27. febrúar og strákarnir á föstudeginum 28. Úrslitaleikirnar verða svo leiknir á laugardeginum 1. mars.
Haukar eru eina félagið sem á fulltrúa bæði karla og kvenna megin sem er frábær árangur.
Stelpurnar spila gegn Val kl. 20:00 á fimmtudeginum og strákarnir gegn FH á föstudeginum kl. 20:00.
Allir leikirnir fara fram í Höllinni.
Forsala á leikina hefst í dag, laugardag kl. 15:00, um leið og miðasala hefst á leik Hauka og Gróttu í Olísdeild kvenna.
Forsalan heldur svo áfram á Ásvöllum alla næstu viku fram að leikjunum.
Það er um að gera að tryggja sér miða í tíma og það er mikilvægt að Haukafólk sem ætlar að kaupa sér miða geri það hjá okkur í forsölunni. Öll sala á Ásvöllum rennur beint til Hauka en sala á midi.is og í Höllinni gerir það ekki.

Miðaverð er kr. 1.500 á hvorn leik fyrir 15 ára og eldri en frítt er fyrir 14 ára og yngri. Haukar í horni sem kaupa miða á báða leikina fá miðana á kr. 2.000 (í stað kr. 3.000) en sama verð er fyrir alla á staka leiki. 

Facebooksíða Hauka: https://www.facebook.com/knattspyrnufelagid.haukar

 Mætum öll og styðjum Hauka til sigurs!

 Af síðu HSÍ:

Handhafar aðgönguskírteina HSÍ sem ætla á úrslitahelgi Coca Cola bikarsins helgina 28.-02.mars í Laugardalshöll geta nálgast miða á leikinn mánudaginn 24.febrúar milli kl.11 og 13 á skrifstofu HSÍ.

Miðar verða eingöngu afhendir gegn framvísun skírteinis og skilríkja og gilda eingöngu A og B aðgönguskírteini á þessa helgi.

ATH. Miðar verða ekki afhentir á öðrum tíma.

Leikjaplan meistaraflokks þessa helgi er:

Fim. 27.feb.2014 17.15 Coca Cola bikar Laugardalshöll Stjarnan – Grótta
Fim. 27.feb.2014 20.00 Coca Cola bikar Laugardalshöll Haukar – Valur

Fös. 28.feb.2014 17.15 Coca Cola bikar Laugardalshöll ÍR – Afturelding
Fös. 28.feb.2014 20.00 Coca Cola bikar Laugardalshöll FH – Haukar

Lau. 1.mar.2014 13.30 Coca Cola bikar Laugardalshöll Úrslitaleikur – Úrslitaleikur
Lau. 1.mar.2014 16.00 Coca Cola bikar Laugardalshöll Úrslitaleikur – Úrslitaleikur

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…