Forkeppni 4.flokkanna

Um helgina leika 4.flokkur karla og kvenna í forkeppni fyrir Íslandsmótið. Sú breyting á sér stað í ár í 4.flokki að leikin er deildarkeppni þar sem leikið er heima og heiman í stað mótafyrirkomulags í fyrra.

4.flokkur karla sendir tvö lið til keppni. A liðið leikur í Austurbergi og leika þeir á laugardag klukkan 13:30, 15:30 og 18:30. B liðið leikur á Strandgötu og leika klukkan 9:00 og 10:00.

4.flokkur kvenna sendir einnig tvö lið til keppni. A liðið leikur í Digranesi í kvöld klukkan 21:00 og svo á sunnudag klukkan 12:00 og 14:00. Aðeins 10 lið eru skráð í keppni B liða í vetur og verður því engin forkeppni leikin. Aðeins ein deild verður spiluð þar.

Við hvetjum fólk til að mæta á leikina hjá upprennandi stjörnum okkar Haukafólks.
ÁFRAM HAUKAR!!!