Flottur sigur á Val – Akureyri mætir í Schenkerhöllina á morgun

Leonharð óskar Kristini til hamingju með fyrsta leikinn. Mynd: Eva Björk
Leonharð óskar Kristini til hamingju með fyrsta meistaraflokksleikinn. Mynd: Eva Björk

Meistaraflokkur karla í handbolta vann flottan sigur á toppliði Vals á föstudaginn í Olís deildinni. Eftir jafnan leik sigu Haukar frammúr í lokin og unnu að lokum sigur 25 – 22. Haukar geta þakkað Janusi Daða vel fyrir sigurinn því drengurinn átti sannkallaðan stórleik og skoraði hann 13 af þessum 25 mörkum Hauka einnig var Giedrius flottur í markinu.

Það má þó ekki gleyma að minnast á það að í þessum leik spilaði ungur Haukastrákur sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir félagið en það er hinn 16 ára gamli Kristinn Pétursson en þess má geta að hann er sonur Péturs Vilberg Guðnasonar fyrrum leikmanns og fyrirliða Haukaliðsins einnig má minnast á það að systur hans Gunnhildur og Vilborg  hafa báðar spilað fyrir meistaraflokk kvenna hjá Haukum og spilar Vilborg með liðinu núna.

Næsti leikur liðsins er strax á morgun, mánudag, þegar Akureyri kemur í heimsókn í Schenkerhöllina og hefst leikurinn kl. 19:00. Einnig má ekki gleyma að minna allt Haukafólk á að taka sunnudaginn 22. nóvember frá því þá spila strákarnir við franska stórliðið Saint Raphael Handball í EHF bikarnum en leikurinn fer fram í Schenkerhöllinni og hefst hann kl. 18.00 og eiga Haukastrákarnir svo sannarlega skilið stuðning fólks í þeim leik. Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…