Flíspeysur

Komið þið sæl,

Ákveðið hefur verið að keyptar verði flíspeysur á strákana í 7.flokki karla. Peysurnar eru rauðar, með Haukamerki og nafni drengsins og kosta aðeins 2000kr. Þær verða afhentar í vor. Ég vona að sem flestir komi til með að kaupa peysur vegna þess að við förum í þeim á Skagamótið á Akranesi í sumar. Þá eru Haukastrákarnir allir eins klæddir og það er bæði mjög þægilegt fyrir alla og voða smart!

Á morgun þriðjudag, munu strákarnir máta peysur til þess að finna út hvaða stærð þeir nota. Fyrir þá stráka sem ekki komast verður giskað á stærð.

Ef þið hafið einhverjar spurningar, hikið þá ekki við að hafa samband.

kv. óli

6943073

oliodds@simnet.is

Flíspeysur

Nokkrar foreldrastjórnir í knattspyrnudeild Hauka hafa ákveðið að sínir flokkar kaupi flíspeysur fyrir sumarið.

Um er að ræða góðar flíspeysur sem hafa verið kynntar fyrir okkur á foreldrafundi þær kosta kr.1.900 með merkingu.

Sölumaður verður á Ásvöllum fimmtudaginn 31. mars milli kl.16.30 – 18.00.

Þá verður hægt að máta peysurnar og ganga frá pöntun.

Peysurnar eru einnig til í fullorðinsstærðum ef foreldrar hefðu áhuga á góðri flík á völlinn í sumar.