FH-HAUKAR Undanúrsl. SS bikarsins
Í kvöld tryggðu stelpurnar okkar sér ferð í bikarúrslitin í Höllinni er þær unnu frábæran sigur á nágrönnunum úr FH, 25-30.
Báðum liðum gekk illa að skora í byrjun, mikil bikarspenna og mikið um mistök. Staðan var 1-1 eftir um 6 mín. leik. Fimleikadömur komust í 3-1 og ekkert virtist ganga hjá okkur. Þær náðu þó loks undirtökunum og jöfnuðu 5-5 og 6-6 og komust yfir eftir fínan kafla seinni hluta fyrri hálfleiks. Staðan í hálfleik var 10-15 fyrir okkur. Seinni hálfleikinn byrjuðu stelpurnar okkar af krafti og náðu afgerandi 10 marka forystu sem ekki var látin af hendi þó aðeins væri slakað á.
Glæsilegur sigur hjá stelpunum okkar og bíðum við spennt eftir að fylgja þeim í Höllina 22. febrúar.
Til hamingju stelpur þið eruð bestar.
