Seinni úrslitaleikur Hauka og FH um sæti í Pepsí-deild kvenna á næsta ári, fer fram á Kaplakrikavelli á þriðjudag og hefst leikurinn kl. 17:30.
Fyrri leiknum á Ásvöllum lauk með sigri FH, 1-8, sjá nánar hér: http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=24190. Stórt tap í fyrri leiknum þýðir að fullyrða megi að úrslitin í þessu einvígi Hafnarfjarðaliðanna séu ráðin.
Haukastúlkur vilja hins vegar enda keppnistímabilið á öðrum nótum en þær gerðu í fyrri leik félaganna og munu mæta í seinni leikinn á Kaplakrikavelli ákveðnar í að gera betur en í fyrri leiknum.
Þá skiptir ekki síður máli að stuðningsfólk Hauka mæti á Kaplakrikavöll og styðji stúlkurnar. Þær eiga það svo sannarlega skilið eftir frábæra frammistöðu í sumar.
Áfram Haukar!
Með þessum orðum látum við fylgja með nokkrar myndir sem teknar voru í fyrri leiknum á Ásvöllum.